Samningurinn fái eðlilega og gegnsæja umfjöllun á þingi
Halla Hrund: Þetta kom mér í opna skjöldu. Það skortir upplýsingar um forsendur samkomulagsins.

„Þetta kom mér í opna skjöldu. Það skortir upplýsingar um forsendur samkomulagsins, af hverju Ísland gaf eftir aflahlutdeild, af hverju fallist var á löndunarskyldu í Noregi, áhrifamat niðurstöðu samkomulags fyrir Ísland og hver eru næstu skref varðandi aðra samningsaðila sem vantar inn í samkomulagið,“ segir Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi um nýgerðan samnings utanríkisráðherra við Bretland, Færeyjar og Noreg um makrílveiðar á næsta ári.

„Því hef ég í tvígang kallað eftir því í þingsal að ráðherra komi strax fyrir atvinnuveganefnd þar sem fundir við utanríkismálanefnd eru bundnir trúnaði og ekki hægt að veita upplýsingum þaðan.

Samningar um deilistofna eru mikilvægir fyrir Ísland til að tryggja rétt Íslands og sjálfbærni veiða. Mikið er hins vegar undir að vel takist til í samningum því þeir hafa áhrif á atvinnulíf og byggðir, líkt og Eyjamenn þekkja best og þjóðarbúið í heild. Sjávarútvegur er sífellt að fjárfesta í öflugum tækjum, búnaði og fólki og því kemur lækkun sér illa fyrir greinina.“

Halla Hrund sagði öfluga hagsmunagæslu á alþjóðavettvangi á sviði sjávarauðlindarinnar vera grundvallarmál. „Að henni er nauðsynlegt að okkar allra besta fagfólk úr stjórnsýslu, háskólum og atvinnulífi komi að. Því er eðlilegt að ráðherra svari gagnrýni atvinnulífs um samráðsleysi og að samningurinn fái eðlilega og gegnsæja umfjöllun á þingi eftir að upplýsingar liggja fyrir,“ segir Halla Hrund.

 

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.