Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir vegna veðurs á eftirtöldum svæðum: Vestfirðir, Norðurland eystra, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra. Þá hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna veðurs á þessum svæðum: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra.
Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi á Þorláksmessu, 23. des. kl. 16:00 og gildir fram á aðfangadag, 24. des. kl. 23:00.
Í viðvörunarorðum segir: Talsverð eða mikil rigning. Búast má við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á fráveitukerfi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.
Suðaustanátt, víða 10-15 m/s og skúrir. Hiti 4 til 9 stig. Samfelldari rigning eða slydda undir kvöld og kólnar. Suðvestan 3-10 seint í kvöld og lítilsháttar él eða skúrir. Vaxandi sunnanátt á morgun, 13-20 seinnipartinn og rigning. Hiti 5 til 9 stig.
Spá gerð: 22.12.2025 12:06. Gildir til: 24.12.2025 00:00.
Á miðvikudag (aðfangadagur jóla):
Sunnan 20-28 m/s, hvassast í vindstrengjum á norðanverðu landinu, en 13-20 sunnanlands. Dregur heldur úr vindi seinnipartinn. Talsverð rigning um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustantil. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi.
Á fimmtudag (jóladagur):
Sunnan 13-20 og súld eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri. Hægari vestast á landinu um kvöldið og bætir í úrkomu.
Á föstudag (annar í jólum):
Suðvestan 8-13, en 13-18 á norðanverðu landinu fram á kvöld. Dálítil él eða slydduél, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig.
Á laugardag:
Sunnanátt og dálítil væta sunnan- og vestanlands, annars þurrt. Hiti víða 5 til 10 stig.
Á sunnudag:
Fremur hæg suðvestlæg átt með stöku skúrum á Suður- og Vesturlandi, en bjart fyrir norðan og austan. Heldur kólnandi.
Spá gerð: 22.12.2025 08:54. Gildir til: 29.12.2025 12:00.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst