Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Nýr verslunarstjóri Krónunnar í Eyjum
Ívar Karl Sigurðsson hefur tekið við stöðu verslunarstjóra Krónunnar í Eyjum. Ljósmynd/aðsend.

Ívar Karl Sigurðsson hefur tekið við stöðu verslunarstjóra Krónunnar í Vestmannaeyjum og hefur þegar hafið störf. Ívar hefur starfað hjá Krónunni í um átta ár og gegnt hinum ýmsu störfum innan fyrirtækisins. Hann hóf feril sinn í mjólkurkælinum í Krónunni í Mosfellsbæ og hefur byggt upp víðtæka reynslu af rekstri, þjónustu og daglegu starfi verslana.

Ívar er nýfluttur til Vestmannaeyja frá höfuðborgarsvæðinu en er stoltur að kalla sig Skagamann. Hann segist hlakka mikið til að kynnast samfélaginu og viðskiptavinum Krónunnar í Eyjum enn betur.

„Það er mikill heiður að fá að starfa í svona sterku og samhentu samfélagi. Verslun í Vestmannaeyjum hefur sína sérstöðu og það er mikilvægt að hlusta vel, vera sýnilegur og vinna í nánu samstarfi við viðskiptavini,“ segir Ívar. „Fyrstu vikurnar hafa verið afar skemmtilegar og lærdómsríkar og ég hlakka til að taka spjallið á gólfinu, því með góðu samtali tekst okkur oftast að gera gott enn betra.“

Þjónustukönnun ætlað að efla þjónustu og bæta upplifun viðskiptavina

Í lok janúar sendi Krónan frá sér þjónustukönnun sem snýr að versluninni á Strandvegi. Markmið könnuninnar er að fá betri innsýn í þarfir og óskir viðskiptavina, með það að leiðarljósi að efla þjónustu, endurskoða vöruúrval og bæta verslunarupplifun.

„Við viljum heyra hvað við erum að gera vel og hvar við getum gert betur. Svör við könnuninni munu nýtast beint í áframhaldandi umbætur á þjónustu og vöruúrvali verslunarinnar. Krónan í Vestmannaeyjum á að vera verslun sem fólk treystir og upplifir sem hluta af samfélaginu,“ segir Ívar að lokum.

Nýjustu fréttir

Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.