Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE eru báðir að landa í Eyjum í dag. Bergey landaði einnig í Grindavík á laugardaginn. Rætt er við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar í dag og eru þeir spurðir um gang veiðanna. Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey lét nokkuð vel af sér.
„Við lönduðum fullfermi í Grindavík á laugardaginn og var það mest þorskur og ufsi. Aflinn fékkst á Pétursey og Vík og var í reyndinni um mokveiði að ræða. Í túrnum var einungis verið í um tvo daga að veiðum. Haldið var út fljótlega eftir að löndun lauk og þá var byrjað út af Þorlákshöfn. Þar fékkst lítið og því var haldið á Pétursey og Vík þar sem var nudd. Síðan var siglt í Meðallandsbugtina og reynt við ýsu. Við munum landa um 50 tonnum í Eyjum í dag,” sagði Jón.
Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey sagði að þeir hefðu haldið austur fyrir land. „Við vorum að veiðum í Berufjarðarálnum, Hvalbakshalli, Papagrunni og á Lónsbugtinni. Það var hið þokkalegasta veður á þessum slóðum en túrinn tók tæpa fimm sólarhringa höfn í höfn. Það fékkst fullfermi í þessum túr og má segja að aflinn hafi verið til helminga þorskur og ýsa,” sagði Egill Guðni í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar.