Bríet kemur fram á Hljómey sem haldin verður þann 24. apríl n.k., en það var tilkynnt rétt í þessu af skipuleggjendum hátíðarinnar.
Bríeti ættu flest allir að þekkja en hún hefur á undanförnum árum skipað sér sess sem ein vinsælasta tónlistarkona landsins og er þekkt fyrir sterka sviðsframkomu og persónulega texta.
Bríet er þar með fjórði listamaðurinn sem hefur verið tilkynntur fyrir Hljómey, en áður hafa Páll Óskar, Sigurður Guðmunds og Kristmundur Axel verið kynntir. Ljóst er að mikil spenna er fyrir hátíðinni, en hátíðin verður haldin í fjórða sinn nú í ár.
Miðasala hefst klukkan 10:00 í dag á midix.is
