Sæunn Magnúsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Hún greinir frá ákvörðuninni í tilkynningu þar sem hún segist telja að þar fari saman þau gildi og sú sýn sem hún vilji sjá endurspeglast í bæjarmálum Vestmannaeyja. Sæunn hefur verið áberandi í sveitarstjórnarmálum undanfarin ár og gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir bæinn.
Með komu hennar bætist í hóp þeirra sem þegar hafa verið kynntir á framboðslista flokksins, en áður höfðu Jón Þór Guðjónsson og Jóhann Ingi Óskarsson verið tilkynntir til leiks. Tilkynningu Sæunnar má lesa í heild sinni hér að neðan.
Ég hef ákveðið að söðla um í stjórnmálunum og ganga til liðs við Miðflokkinn þar sem ég tel að þar fari saman þau gildi og sú sýn sem ég vil sjá endurspeglast í bæjarmálunum með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Málefni sveitarfélagsins standa mér nærri og hef ég af alúð tekið virkan þátt í þeim undanfarin ár. Síðastliðin fjögur ár hef ég verið varabæjarfulltrúi, setið í framkvæmda- og hafnarráði og í stjórn Herjólfs ohf. Þá hef ég látið mig íþróttalíf í Vestmannaeyjum varða en ég var formaður ÍBV íþróttafélags frá 2022-2024. Af þessum störfum hef ég öðlast mikla og dýrmæta reynslu og dýpri þekkingu og skilning á samfélaginu okkar.
Rekstur sveitarfélags er umfangsmikið verkefni sem krefst ráðdeildar, framsýni og skynsemi. Það er ljóst að sjóðir sveitarfélagsins hafa rýrnað á síðustu árum og því mikilvægt að leita leiða til þess að auka skilvirkni í rekstrinum, huga að lausnum til framtíðar og fjárfesta af skynsemi. Þrátt fyrir að mörgu góðu hafi verið áorkað síðustu ár er að sama skapi margt sem betur má fara. Framundan eru spennandi en krefjandi tímar þar sem sýna þarf festu, sækja fram þar sem sóknarfæri skapast en á sama tíma að standa vörð um það sem þegar hefur verið áorkað. Ég er svo sannarlega tilbúin til að leggja hönd á plóg og hlakka komandi verkefna.