Nú eru þrjár umferðir eftir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026. Mótið hófst 17. janúar sl. og eru keppendur tíu talsins. Teflt er í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.
Alls verða tefldar níu umferðir og er umhugsunartími 60 mínútur á skák með 30 sekúndna viðbót á hvern leik. Hver umferð tekur yfirleitt 1,5–2,5 klukkustundir. Skákstjóri er Sæmundur Einarsson.
Eftir sex umferðir eru Sigurjón Þorkelsson, núverandi skákmeistari Vestmannaeyja, og Arnar Sigurmundsson efstir með 5,5 vinninga. Auðunn Haraldsson er með 4,5 vinninga og á eina frestaða skák.
Næstir á eftir þremenningunum koma Hallgrímur Steinsson, Sæmundur Einarsson og Arnar Bogi Andersen, en aðrir keppendur eru nokkru neðar í stigatöflunni.
Í síðustu þremur umferðunum mætast þeir sem sitja í þremur efstu sætunum. Sigurjón og Auðunn hafa þegar lokið sinni viðureign. Gert er ráð fyrir að Skákþinginu ljúki sunnudaginn 15. febrúar nk.
Þá kemur í ljós hver verður skákmeistari Vestmannaeyja árið 2026, segir í tilkynningu frá Taflfélagi Vestmannaeyja.