Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Róbert Sigurðsson. Mynd/ÍBV handbolti

Handboltamaðurinn Róbert Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með félaginu út tímabilið 2027/2028. Félagið greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum.

Í tilkynningu ÍBV segir ,,Róbert hefur verið stór hluti af félaginu í gegnum árin. Með baráttu anda, vinnusemi og sterka tengingu við Eyjar heldur hann áfram að leggja sitt af mörkum fyrir liðið og framtíð félagsins. Framtíðin er björt og Róbert Sigurðarson er klár”.

Róbert kom fyrst til ÍBV fyrir tímabilið 2017 og lék með félaginu sex tímabil. Á því tímabili varð hann tvisvar sinnum Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari. Hann hélt svo út í atvinnumennsku, þar sem hann lék með Drammen í Noregi. Hann kom aftur til Eyja fyrir síðustu leiktíð og ljóst er að hann spilar með ÍBV næstu tvö árin. 

Kærasta Róberts er handboltakonan Andrea Jacobsen en hún samdi við kvennalið ÍBV á dögunum, einnig til ársins 2028.

Nýjustu fréttir

Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.