
Telja má niður í stærsta partý ársins þegar Þjóðhátíðarupphitun 2026 fer fram – tónleikar sem ætlaðir eru til að kveikja í brekkusöngsandanum og hita landsmenn rækilega upp fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Með Stuðlabandið í fararbroddi og fjölbreyttan hóp vinsælla listamanna á sviði verður boðið upp á lög sem hafa markað Þjóðhátíð þessarar aldar, ásamt ómissandi sígildum smellum. Hér er greinilega um meira en hefðbundna tónleika að ræða – heldur upphaf að sturluðu Þjóðhátíðarsumri 2026.
Þjóðhátíðarupphitun er stórt verkefni og að sögn tónleikahaldarans, Bjarna Ólafs Guðmundssonar hefur hugmyndin verið lengi í mótun. Hún kviknaði fyrir nokkrum árum, en nú fannst honum rétti tíminn kominn. Eyjatónleikarnir eru settir í hvíld í bili og með þessu er komið til móts við þá sem töldu janúar ekki heppilegan tíma fyrir slíka viðburði og vildu frekar sjá þá færða yfir í mars.
„Ég vildi hafa ÍBV með mér í þessu verkefni og fannst steinliggja að fá Marinó og félaga í Stuðlabandinu með í það,“ segir Bjarni. „Þeir eru hagvanir á sviðinu í Herjólfsdal og þekkja þessa tónlist út og inn.“
Frá upphafi hafi einnig verið skýr sýn á inntak dagskrárinnar. „Það var alltaf hugmyndin hjá mér að stíla meira inn á Þjóðhátíðarlögin okkar, sérstaklega þau nýjustu. Ég vildi breyta aðeins dínamíkinni sem við höfum verið að vinna með og gera þetta að alvöru upphitun fyrir Þjóðhátíð – meira partý.“
Sérstök áhersla er lögð á Þjóðhátíðarlög þessarar aldar og telur Bjarni þar vera vannýttan fjársjóð. Hann segist jafnvel hafa kvartað undan því að ekki sé sungið nægilega mikið af þessum lögum í Herjólfsdal á sjálfri Þjóðhátíðinni.
„Þetta er vissulega misjafnt milli ára, en að mínu mati eigum við að gera miklu meira af þessu á hverju einasta ári,“ segir hann. Nýju lögin séu mörg hver stærri, kraftmeiri og bjóði upp á meira fjör og meira partý.
Listamannalistinn er bæði fjölbreyttur og sterkur, með Magnúsi Kjartani, Jóhönnu Guðrúnu, Hreimi, Jónsa, Söru, Unu og Emmsjé Gauta. Að sögn Bjarna Ólafs var valið þó tiltölulega einfalt.
„Öll hafa þau unnið með okkur áður í Hörpunni, elska Þjóðhátíð og við vildum hafa fjölbreytni í hópnum,“ segir hann. Hann bætir við að margir aðrir hefðu auðveldlega getað komið til greina, enda hafi nánast allir vinsælustu söngvarar þjóðarinnar stigið á svið í Dalnum og eigi sterka tengingu við þessa tónlist.
Stuðlabandið heldur utan um kvöldið og lofar upplifun sem spannar allan tilfinningaskalann. „Þetta verður allur pakkinn,“ segir Bjarni. „Stuðlabandið – og reyndar allt þetta listafólk – er ekki þekkt fyrir neitt annað en stuð og stemningu.“ Sum lögin muni kalla fram alvöru gæsahúð, önnur fá fólk á fætur að dansa og enn önnur sameina söng, gleði og hreina geggjun.
Aðspurður um hvað hann vonist til að gestir taki með sér út í sumarið og inn í sjálfa Þjóðhátíðina 2026 er svarið skýrt: „Fyrst og fremst þá tilfinningu – mikið hrikalega hlakka ég til næstu Þjóðhátíðar!“
Hann vonast til að sjá sem flesta, unga sem aldna, Eyjamenn jafnt búsetta í Eyjum sem á fastalandinu, að ógleymdum öllum vinum hátíðarinnar nær og fjær sem elska þessi lög, þessa hátíð og þessa stemningu.
Að lokum minnir Bjarni Ólafur á að miðasala er hafin á tix.is og hvetur alla til að tryggja sér miða á besta stað í Háskólabíói föstudaginn 28. mars næstkomandi.