Tilboð í gatnagerð og fráveituframkvæmdir í Sólhlíð voru opnuð 6. febrúar síðastliðinn. Alls bárust tvö tilboð í verkið.
Gröfuþjónusta Brinks ehf. reyndist lægstbjóðandi með tilboð upp á 82.297.019 krónur. HS Vélaverk ehf. bauð 98.987.989 krónur í framkvæmdina, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 103.308.500 krónur.
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að taka tilboði Gröfuþjónustu Brinks ehf. og falið sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.