Sigla síðdegis í Landeyjahöfn
landeyjah_her_nyr
Herjólfur siglir inn Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag eina ferð, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf., en undanfarna daga hefur ferjan þurft að sigla í Þorlákshöfn. Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Landeyjahöfn kl. 20:15.

Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 í fyrramálið. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, segir að endingu í tilkynningu skipafélagsins.

Sandæluskipið Álfsnes var komið á svæðið undir morgun, en dýpka þarf töluvert í og við höfnina svo hægt sé að sigla fleiri áætlunarferðir í Landeyjahöfn.

Nýjustu fréttir

Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.