Með hækkandi sól er komið að fermingum um allt land. Fermingardagar í Landakirkju eru laugardaginn 28. mars kl. 11.00, laugardaginn 11. apríl kl. 11.00, laugardaginn 18. apríl kl. 11.00 og sunnudaginn 24 maí kl. 11.00.
Fermingarundirbúningur stendur því sem hæst. Hér má sjá hóp stúlkna sem fermast í vor ásamt séra Guðmundi Erni. Aftari röð, María Sigrún Jónasdóttir, Bríet Ósk Magnúsdóttir, Helga Dís Viktorsdóttir, séra Guðmundur Örn, Sigrún Anna Valsdóttir, Embla Rún Sigríðardóttir og Beta Rán Sigríðardóttir. Fremri röð, Kara Kristín V. Gabríelsdóttir, Dísella Sif Sæmundsdóttir, Rakel Birta Kristjánsdóttir, Lilja Huld Þórisdóttir og Vigdís Linda Logadóttir.