Heimir mætir með Írland í umspilsleik í kvöld
Heimir Hallgrímsson.

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson mætir með Írland til leiks í umspilsleik um sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta í kvöld. Írar mæta Tékklandi á útivelli í fyrri umspilsleiknum. Ef þeir vinna þann leik munu þeir mæta Danmörku eða Norður-Makedóníu í hreinum úrslitaleik um sæti á heimsmeistaramótinu í sumar sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og og Mexikó, dagana 11.-19. júní. 

Heimir og lærisveinar tryggðu sér annað sæti í F-riðli og sæti í umspilinu eftir dramatískan 2-4 sigur á Ungverjalandi í undankeppninni. Portúgal endaði efst í riðlinum með 13 stig og fer beint á HM.

Leikur Tékklands og Írlands fer fram í kvöld kl. 19:45 , á Fortuna Arena í Prag.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.