Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns – Tilvalin Páskagjöf
Verður haldinn 1-3 apríl nk er það verður frí í skóla sem og á æfingum. Hér er frábært tækifæri til að brjóta upp daginn fyrir krakkana sem og efla þau í fótboltanum. Styrktaraðilar skólans eru Heildverslun Karls Kristmanns sem og Vestmanneyjabær.
Fótboltaskólinn er fyrir krakka í 1-8 bekk.
Allir þátttakendur fá páska glaðning.
Nákvæm tímasetning verður sett upp eftir að fjöldi þátttakenda liggur fyrir. Gera má ráð fyrir að æfingar verði á milli klukkan 10-15 hvern dag. Þátttakendum verður skipt upp eftir aldri. Stjórnendur og leiðbeinendur skólans verða þjálfarar og leikmenn mfl karla og kvenna.
Það verður sérstök áhersla lögð á tækniæfingar og mun fjöldi þjálfara vera á hverri æfingu til að þær skili sem mestu fyrir börnin.
Skráningafrestur er til 31. mars og þau sem bóka fyrir þann tíma er TRYGGÐ páskagjöf.
Verð er aðeins 5.900 kr.
Þetta er tilvalin páskagjöf til krakkanna frá mömmu og pabba eða afa og ömmu. Þar sem gjöfin inniheldur þá öflugan fótboltaskóla sem og Páskagjöf fyrir hátíðina.
Styrktaraðilar skólans eru Heildverslun Karls Kristmanns sem og Vestmannaeyjabær.
Skráning fer fram á Sportabler
