Rúmlega 1,4 milljarð króna kostar að byggja 7 nýja búningsklefa og fokhelda efri hæð við íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Bæjarstjórn Vestmannaeyja tekur lokaákvörðun um framhaldið á sínum næsta fundi á morgun.
Ekki er hægt að finna neina umfjöllun um framkvæmdina í fundagerðum:
- framkvæmda og hafnarráðs
- fjölskyldu og tómstundarráðs
- fræðsluráðs
Framkvæmdin mun draga til sín gríðarlega mikið fjármagn og hafa áhrif á framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum til lengri tíma.
Það sem vekur einnig athygli er að hvergi í vinnu starfshóps eða beiðnum félaga var óskað eftir umræddum klefum. Þvert á móti vildi hreyfingin sjá frekari vinnu fara fram og vanda til verka með kaupum á þarfagreiningu frá færu fólki á þessu sviði.
Á næsta bæjarstjórnarfundi munu bæjarfulltrúar fá tækifæri til að stöðva þessa framkvæmd sem fór framhjá öllum nefndum og ekkert samráð var haft um.
Ég tók saman söguna á bakvið framkvæmdina.
- mars 2019 var stofnaður starfshópur af fjölskyldu- og tómstundarráði Vestmannaeyjabæjar þar sem lagt var til að stofnaður yrði starfshópur um framtíðarsýn er varðar rekstur, uppbyggingu og aðstöðu íþróttamála í Vestmannaeyjum.
- apríl 2021 skilaði starfshópurinn frá sér áfangaskýrslu um íþróttamál Vestmannaeyja. Hvergi var talað um umrædda búningsklefa í umræddri skýrslu.
Aðalstjórn og deildir félagsins unnu í kjölfarið áfram þær hugmyndir sem höfðu verið viðraðar innan félagsins og tóku til hliðsjónar inn ábendingar annarra félaga Héraðssambandsins úr skýrslunni til að móta heildstæða lausn á vandamálinu.
- maí 2021 átti framkvæmdastjóri ÍBV Íþróttafélags fund með Jóni Péturssyni sviðstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og Ernu Georgsdóttur æsku-, tómstunda- og íþróttafulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Á þeim fundi voru kynntar hugmyndir um uppbyggingu á íþróttasvæðinu við Hásteinsvöll með það að megin markmiði að sameina félagið á einn stað og auka aðgengi annarra félaga að aðstöðu. Heildstæða lausn sem félagið taldi leysa flest þau vandamál sem útlistuð höfðu verði í áfangaskýrslu starfshópsins.
- september 2021 hélt ÍBV Íþróttafélag félagsfund þar sem krafa sveitarfélagsins hafði verið að félagið kæmi sér saman um í hvaða röð félagið vildi að uppbyggingin færi fram. Ekki var eining eins og margir muna um hvort fyrst ætti að stækka Herjólfshöllina eða setja gervigras á Hásteinsvöll. Hins vegar var samhugur hjá öllum í félaginu um heildarmarkmiðin og framtíðarsýn félagsins. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta kom með góða ábendingu um nauðsynlega breytingar á búningsaðstöðu fyrir meistaraflokka handboltans á Íþrótthúsinu. Strax í kjölfarið fór félagið fram á að úrbætur yrðu gerðar.
- júní 2022 lét ÍBV Íþróttafélag VSÓ framkvæma vinnulýsingu og gátlista yfir það sem þyrfti að skoða til að þarfagreina íþróttaiðkun og skoða heilstæða lausn á þörfum í uppbyggingum íþróttamála í Vestmannaeyjum. Slíkt hafði VSÓ gert fyrir fjölmörg sveitafélög og kostaði áframhald slíkrar vinnu 2.995.000 kr.
- ágúst 2022 sendi framkvæmdastjóri ÍBV Íþróttafélags ítarlegt bréf á bæjarstjóra, sviðstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs eftir ítrekaðar beiðnir um úrbætur á klefunum. Dagur Arnarson leikmaður hafði farið fyrir hóp leikmanna um þá alvarlegu stöðu sem þá var orðin í búningsklefum meistaraflokkana.
Í þessu bréfi var þess jafnframt óskað að farið yrði í vinnu við heildstæða þarfagreiningu á uppbyggingu íþróttamannvirkja og ítrekuð þörfin fyrir því að fyrst yrði farið tafarlaust í lagfæringar á búningsaðstöðu handboltans líkt og kveðið var á um á félagsfundi árið áður.
„Hins vegar er ákallandi þörf á því að laga búningsklefa hjá meistaraflokkum handboltans tafarlaust og engin ákvörðun um uppbyggingu, hvort sem það eru nýjir klefar við íþróttamiðstöð eða nýtt félagsheimili og handknattleikshöll við Hástein mun leiða til þess að leysa þessa grafalvarlegu stöðu sem þar er. Staðan er svo slæm að starfsmenn íþróttamiðstöðvarinnar hafa ekki sinnt þrifum í klefunum í lengri tíma. “ sagði meðal annars í bréfinu.
- ágúst 2022 aðalstjórn sendi sviðstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs formlegt erindi þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðari uppbyggingu nýrra búningsklefa við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja sem heyrst hafði þá í umræðunni. Erindið má sjá hér:

- ágúst 2022 hvað varðar lekann og breytingar á búningsaðstöðunni brást bærinn hratt við erindinu sem og tölvupóstinum frá 3. águst og fór í miklar úrbætur á klefum með það að markmiði að stöðva þann mikla leka sem var á húsnæðinu. Settar voru 80 milljónir króna í heildina í breytingu á búningsaðstöðu meistaraflokka ÍBV í handbolta.
- maí 2023 Sæunn Magnúsdóttir formaður ÍBV, Arnar Richardsson varaformaður ÍBV og Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri ÍBV funda með framkvæmdastjórn Vestmannaeyjabæjar um hugmyndir bæjarins vegna nýframkvæmdar á búningsklefum við Íþróttamiðstöðina og þá framtíðarsýn sem félagið hafði á Íþróttamannvirkjum. Óskað var eftir stuðningi við að áframhaldandi þróunarvinnu á uppbyggingu íþróttasvæðisins við Hásteinsvöll.
- maí 2023 barst efnislegt svar frá Jóni Péturssyni, sviðstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, við aðalstjórnar félagsins frá ágúst 2022.

Enn var því til skoðunar hvað skyldi gera og efnislega var erindinu um nýja búningsklefa aldrei svarað.
- febrúar 2024 samþykkti bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar að auglýsa og kynna vinnslutillögu deiliskipulagsbreytingar við íþróttamiðstöðina.
- apríl 2024 var lokadagur til að senda inn ábendingar og athugasemdir við tillöguna.
Sendi undirritaður meðfylgjandi athugasemd sem birt er hér neðst.
- nóvember 2024 fyrsta skóflustungan að nýjum búningsklefum við Íþróttamiðstöðina.
- apríl 2026 opnun tilboða í verkefnið þar sem lægsta boð nam 1.421.818.336 kr.
- apríl 2026 bæjarráð staðfestir ákvörðun framkvæmda og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar
Það erfitt að sjá á eftir þeim glötuðu tækifærum sem nýir búningsklefar munu um ókomna tíð standa fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Það er sennilega engin tilviljun sem ræður því að önnur sveitafélög hafa farið þá hagkvæmnisathugun og komist að þeirri niðurstöðu að besta leiðin sé að samnýta alla aðstöðu og umgjörð á einum stað á milli íþróttagreina í handbolta og fótbolta.
Því var einnig haldið fram að þetta væri skólahúsnæði og því kæmi þetta íþróttahreyfingunni ekki við, hefði þá ekki bæði fræðsluráð og fjölskyldu og tómstundaráð eins átt að fjalla um málið?
Að lokum fylgir athugasemd mín við byggingu búningsklefa við Íþróttamiðstöðina frá apríl 2024 þar sem ítrekuð er þörfin fyrir gerð þarfagreiningar heildstæðri framtíðarsýn fyrir íþróttamannvirki í Vestmannaeyjum. Ásamt myndskeiði frá fótboltamótunum í Eyjum sem sýnir eina af þeim knýjandi þörfum sem eru fyrir því að byggja fremur upp aðstöðu við Hásteinsvöll.

