ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
ÍBV stelpurnar fagna í leikslok. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn gegn Val, eftir sigur á Haukum í undanúrslitum úrslitakeppni Olís deildar kvenna, í Eyjum í kvöld. Tvíframlengja þurfti leikinn og var mikil spenna allan tímann. Lokatölur leiksins 36-31.

Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi fyrri hálfleiks en Haukar leiddu með einu marki, 5-6 eftir stundarfjórðung. ÍBV komst tveimur mörkum yfir, 13-11, sex mínútum fyrir hálfleiks flautið. Eyjakonur leiddu með einu marki í hálfleik, 15-14.

Hauka konur náðu forystunni á upphafsmínútum síðari hálfleiks og voru tveimur mörkum yfir, 16-18. Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka voru Haukar yfir, 21-23. Gríðarleg spenna var á lokamínútum venjulegs leiktíma og leiddu Eyjakonur með einu marki, 27-26 þegar þrjátíu sekúndur voru eftir. Haukar jöfnuðu alveg undir lok leiks í 27-27 og því þurfti að framlengja.

Frábær lokakafli ÍBV

Haukar byrjuðu framlenginguna betur og náðu strax tveggja marka forskoti, 27-29. Eyjakonur skoruðu þrjú mörk í röð og voru einu marki yfir þegar tvær mínútur voru eftir. Haukar jöfnuðu í 30-30 og ekkert var skorað síðustu tvær mínúturnar. Framlengja þurfti því aftur. 

ÍBV reyndist sterkari aðillinn í síðari framlengingunni en þegar þrjár mínútur voru eftir var staðan 32-31. Eyjakonur áttu frábæran lokakafla og unnu að lokum fimm marka sigur. Lokatölur leiksins 36-31.

Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, var markahæst í leiknum með tíu mörk. Amalia Frøland varði 11 skot í marki ÍBV og Ólöf Maren Bjarnadóttir fimm. 

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 10 mörk, Agnes Lilja Styrmisdóttir 6, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 3, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 3, Britney Emilie Florianna Cots 2, Lilja Kristín Svansdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Birna María Unnarsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.