Á laugardaginn hélt Vinnslustöðin hf. glæsilega árshátíð í Höllinni í Vestmannaeyjum þar sem um 200 manns komu saman til að njóta kvöldsins. Frá þessu er greint á fréttasíðu fyrirtækisins.
Kvöldið hófst með fordrykk á Háaloftinu áður en borðhald hófst í Höllinni. Jónsi, söngvari í Svörtum fötum, var veislustjóri kvöldsins og setti strax tóninn fyrir skemmtilega og líflega stemningu. Gestir voru á einu máli um að kvöldið hefði tekist einstaklega vel og að stemmingin hefði verið frábær frá upphafi til enda.
Á meðan borðhaldi stóð nutu gestir fjölbreyttrar dagskrár þar sem m.a. var sungið og tekið vel undir með flytjendum. Maturinn frá Einsa Kalda vakti einnig mikla lukku og þótti einstaklega glæsilegur líkt og undanfarin ár.
Eitt af eftirminnilegustu atriðum kvöldsins var þegar Veronica Yakovlyeva, 17 ára stúlka frá Vestmannaeyjum, steig á svið og flutti frumsamin lög og texta. Flutningurinn vakti djúpar tilfinningar meðal gesta og voru margir sammála um að hún hefði skilað einstaklega fallegri og áhrifamikilli stund.
Tónlistarfólkið Matti Matt, Diljá Pétursdóttir og Vignir og hljómsveit sáu um að halda uppi fjörinu bæði í borðhaldi og á balli sem síðar um kvöldið var opið bæjarbúum.
Undirbúningur árshátíðarinnar fór fram á skemmri tíma en vanalega þar sem nýlega var tekin ákvörðun um að færa árshátíðina frá október fram í maí. Sú breyting var gerð með hliðsjón af starfsemi fyrirtækisins og þótti henta betur að halda hátíðina að vori til. Undirbúningur árshátíðarinnar er í höndum starfsfólks á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar og þar hefur Helena gegnt lykilhlutverki. Hún hefur samhliða öðrum störfum sínum hjá fyrirtækinu sett á sig hatt viðburðarstjóra og haldið utan um skipulag og undirbúning með miklum sóma.
Ekki eiga þó allir kost á að mæta árshátíðina þar sem botnfiskskip fyrirtækisins eru jafnan ekki stöðvuð vegna hennar. Uppsjávarskipin höfðu hins vegar lokið úthaldi sínu í kolmunna og því gátu sjómenn á uppsjávarskipunum tekið þátt í hátíðarhöldunum að þessu sinni.
Nú styttist í sjómannadaginn og undirbúningur þeirra hátíðahalda er þegar hafinn hjá Vinnslustöðinni. Þar verður sjómönnum og mökum þeirra boðið til kokteilboðs í Eldheimum áður en haldið verður á hátíðarhöldin í Höllinni.
Að lokum vill Vinnslustöðin færa öllum þeim sem mættu á árshátíðina kærar þakkir fyrir þátttökuna, góða stemmingu og fallega skemmtun sem gerði kvöldið eftirminnilegt. Einnig eru starfsfólki Hallarinnar færðar sérstakar þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag og fagmennsku við að gera árshátíðina að þeim einstaka viðburði sem hún hefur orðið ár eftir ár.
Fleiri myndir frá árshátíðinni má sjá með því að smella hér.