Kvennalið ÍBV í fótbolta vann sannfærandi 0-5 sigur á Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, á Sauðárkróki í dag. Tindastóll spilar í Lengjudeildinni og hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum þar á meðan Eyjakonur hafa verið á blússandi siglingu í Bestu deildinni.
Eyjakonur komust yfir strax á sjöttu mínútu leiksins með marki frá Allison Patriciu Clark þegar hún skoraði með góðu skoti fyrir utan teig. Þóra Björg Stefánsdóttir kom ÍBV í 0-2 þegar hún fylgdi á eftir skoti Milenu Michaelu Patru eftir tuttugu mínútna leiks. Milena skoraði svo sjálf tólf mínútum síðar þegar hún stal boltanum af varnarmanni Tindastóls og setti boltann örugglega í netið. Þóra Björg Stefánsson skoraði sitt annað mark og fjórða mark ÍBV í leiknum á 40. mínútu, þegar hún lagði boltann í netið af stuttu færi, eftir undirbúning Allison Clark. Staðan 0-4 í hálfleik.
Eyjakonur voru með öll völd á vellinum allan leikinn og fengu urmul af færum til að setja fleiri mörk. Fimmta og síðasta mark ÍBV kom á 56. mínútu leiksins þegar hin unga og efnilega Tanja Harðardóttir skoraði af löngu færi. Lokatölur leiksins 0-5 og verður ÍBV í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitunum.
Tindastóll 0 – 5 ÍBV
0-1 Allison Patricia Clark (‘6 )
0-2 Þóra Björg Stefánsdóttir (’21 )
0-3 Milena Michaela Patru (’32 )
0-4 Þóra Björg Stefánsdóttir (’40 )
0-5 Tanja Harðardóttir (’56 )