Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Tafir á Herjólfi og ófyrirsjáanlegar aðstæður hafa kostað verkefnið bæði tíma og fjármuni
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, við kjarnaborinn á Eiðinu þar sem rannsóknarboranirnar fara fram í fyrsta áfanga. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Framkvæmdir við rannsóknarboranir vegna Eyjaganga hafa mætt ýmsum áskorunum síðustu vikur. Borun hefur reynst erfið á köflum og segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, að samgönguerfiðleikar milli lands og Eyja séu einnig farnir að hafa veruleg áhrif á framvindu verkefnisins.

Borunin er nú komin niður á 66,3 metra í þeirri holu sem nú er unnið í. Áður höfðu menn náð niður á 84 metra áður en bakslag varð og hefja þurfti vinnu að nýju.

Þegar Eyjafréttir náðu tali af Haraldi var hann á leið á fund fjárlaganefndar Alþingis ásamt Ingunni Jónsdóttur, stjórnarmanni í Eyjagöngum. Til umræðu er fyrirhuguð stofnun innviðafélags ríkisins og munu forsvarsmenn Eyjaganga koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Kostar bæði tíma og peninga

Haraldur segir að framkvæmdirnar séu þess eðlis að stundum þurfi að steypa í holur á milli verkþátta og bíða eftir að efnið nái réttum eiginleikum áður en hægt sé að halda áfram.

„Þetta eru mjög nákvæm verk. Þegar búið er að steypa þarf að bíða eftir að steypan nái ákveðnum eiginleikum áður en næsta skref er tekið. Á meðan er oft skipt um mannskap,“ segir Haraldur.

Í einu slíku tilviki hafi samgönguvandamál hins vegar sett strik í reikninginn. „Það varð seinkun á Herjólfi og nýr hópur starfsmanna komst ekki yfir á réttum tíma. Það hefur auðvitað áhrif þegar maður er með verkefni þar sem tímasetningar skipta miklu máli.“

Hann segir að slíkir hnökrar geti fljótt orðið kostnaðarsamir. „Þetta kostar bæði tíma og fjármuni. Þegar verkefni af þessari stærðargráðu fara úr takti hefur það áhrif á bæði framvindu og kostnað.“

Þrátt fyrir áskoranir segir Haraldur að verkefnið haldi áfram af fullum krafti og að menn séu vanir því að mæta óvæntum hindrunum í framkvæmdum sem þessum.

Nýjustu fréttir

Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja
Starfsmenn World Class vinna við lokafrágang
Gleðisprengjur sprungu með látum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.