​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Kjörsókn var dræmari í ár miðað við bæjarstjórnarkosningarnar 2022 og 2018. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum reyndist minni en í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Samkvæmt lokatölum greiddu 2.649 atkvæði af 3.538 á kjörskrá, sem jafngildir 74,9% kjörsókn.

Til samanburðar var kjörsókn í bæjarstjórnarkosningunum árið 2022, 80,9%, árið 2018, 83,2% og árið 2014, 74,7%.​ Munurinn frá kosningunum árið 2022 nemur um sex prósentustigum, en kjörsóknin nú er þó svipuð og hún var árið 2014. Síðustu sveitarstjórnarkosningar hafa almennt einkennst af kjörsókn yfir 80%, en nú fór hún niður fyrir 75% í fyrsta sinn síðan árið 2014.

Þá má geta þess að kjörsóknin um síðustu helgi var mun meiri í öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu en í kosningunum fyrir fjórum árum. Sama gildir um nokkur stærstu sveitarfélögin á landsbyggðinni.

Eitt sem vekur athygli er að kjósendum í​ Eyjum hefur fjölgað töluvert frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Nú voru 3.538 á kjörskrá, samanborið við 3.284 árið 2022, sem er fjölgun um 254 kjósendur, eða ríflega 7,7%.

Fáar útstrikanir 

Yfirkjörstjórn Vestmannaeyja hefur nú lokið yfirferð sinni yfir breytta atkvæðaseðla og sent kosningaskýrslu og yfirlýsingu um úrslit til Landskjörstjórnar. Niðurstaðan staðfestir áður birt úrslit kosninganna.

Yfirferðin sýnir að breytingar kjósenda á listum höfðu ekki áhrif á niðurstöðuna. Á D-lista fékk oddvitinn Eyþór Harðarson 23 útstrikanir, Trausti Hjaltason 43 og Hildur Sólveig Sigurðardóttir 25. Á E-lista fékk Arndís María Kjartansdóttir 18 útstrikanir og Anton Örn Björnsson 10. Á M-lista voru útstrikanir enn færri, þar sem Jón Þór Guðjónsson fékk tvær og Sæunn Magnúsdóttir eina.

Nýjustu fréttir

Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.