ÍBV tekur á móti Grindavík/Njarðvík á Hásteinsvelli í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Eyjastúlkur hafa farið vel af stað í sumar, unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum og sitja í öðru sæti deildarinnar með 12 stig.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 á Hásteinsvelli og þar fá Eyjastúlkur tækifæri til að halda áfram öflugri byrjun sinni á tímabilinu. Fyrir umferðina er ÍBV í öðru sæti deildarinnar með 12 stig eftir fimm leiki, þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks.
Gestirnir úr Grindavík/Njarðvík eru í fimmta sæti með sjö stig og hafa sýnt ágæt tilþrif það sem af er móti. Því má búast við krefjandi verkefni fyrir ÍBV sem vill halda sér í toppbaráttunni.
Knattspyrnudeild ÍBV hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna á völlinn og skapa öfluga stemningu. Sérstök hvatning er til þeirra sem mæta í hvítu en allir sem gera það geta skráð sig í pott og átt möguleika á að vinna gjafabréf frá GOTT. Fyrir leik verður einnig opið í „Lundaholunni“ þar sem boðið verður upp á hamborgarasölu.
Leikir dagsins í Bestu deild kvenna:
Fram – Þór/KA kl. 16:00
ÍBV – Grindavík/Njarðvík kl. 16:00
Þróttur R. – Stjarnan kl. 19:15
Breiðablik – FH kl. 19:15
Víkingur R. – Valur kl. 19:15