Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
ÍBV stelpurnar fagna marki Allison Patriciu Clark í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV tók á móti Grindavík/Njarðvík í nýliðaslag, í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í dag. Fyrir leikinn mátti búast við spennandi viðureign en bæði lið hafa farið vel af stað í deildinni.

Grindavík/Njarðvík fór betur af stað og voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Gestirnir tóku forystuna eftir rúman hálftíma leik þegar Natasha Moraa Anasi náði að pota boltanum í netið eftir hornspyrnu. Grindavík/Njarðvík fengu urmul af tækifærum til að bæta við í fyrri hálfleik en fóru með 0-1 forystu inn í hálfleik.

Eyjakonur frískari í síðari hálfleik

Eyjakonur sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik og pressuðu gestina nokkuð vel. Þóra Björg Stefánsdóttir átti frábæra tilraun þegar hún setti boltann í samkeytin beint úr hornspyrnu þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka. Allt stefndi í sigur Grindavík/Njarðvík en þegar komið var í uppbótartíma náðu Eyjakonur góðri sókn. Magdalena Jónasdóttir átti þá fyrirgjöf frá vinstri vængnum á Allison Patriciu Clark sem stýrði boltanum niðri í fjærhornið. Lokatölur leiksins 1-1.

ÍBV eru eftir sex leiki í öðru sæti deildarinnar með 13 stig. FH getur jafnað ÍBV að stigum í kvöld vinni þær Breiðablik. Grindavík/Njarðvík er í fimmta sæti með átta stig. Einn leikur fór fram á sama tíma þar sem Fram sigraði Þór/KA, 3-2. Umferðin klárast í kvöld með þremur leikjum.

ÍBV 1 – 1 Grindavík/Njarðvík

0-1 Natasha Moraa Anasi (’36 )

1-1 Allison Patricia Clark (’92 )

Nýjustu fréttir

Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.