Samfylkingin er áfram stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup, en Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi milli mánaða og mælist nú með 23,5 prósenta fylgi. Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn með 17,6 prósent fylgi.
Samkvæmt könnuninni myndu 28,4 prósent kjósa Samfylkinguna ef gengið yrði til Alþingiskosninga í dag, 23,5 prósent Sjálfstæðisflokkinn og 17,6 prósent Miðflokkinn. Viðreisn mælist með 10,6 prósent fylgi og Framsóknarflokkurinn með 6,7 prósent. Vinstri græn og Flokkur fólksins mælast með um fjögur prósent hvort um sig.
Gallup bendir á að helstu breytingar frá fyrri mælingu séu að fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi aukist um rúm tvö prósentustig og fylgi Framsóknarflokksins um rúmt eitt prósentustig. Á sama tíma hefur Flokkur fólksins tapað rúmu prósentustigi.
Í Suðurkjördæmi er staðan nokkuð önnur en á landsvísu. Þar mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 30,2 prósenta fylgi, Miðflokkurinn með 23,7 prósent og Samfylkingin með 21,1 prósent.
Framsóknarflokkurinn mælist með 9,4 prósent fylgi, Viðreisn með 5,7 prósent, Flokkur fólksins með 4,5 prósent og Vinstri græn með 2,9 prósent. Píratar mælast með 0,5 prósent fylgi. Úrtakið í Suðurkjördæmi byggir á 685 svörum.
Sé litið til mælingarinnar sem birt var í síðasta mánuði hefur Samfylkingin aukið fylgi sitt mest í Suðurkjördæmi. Flokkurinn mældist þá með 17,3 prósent en mælist nú með 21,1 prósent, sem er aukning um tæp fjögur prósentustig.
Sjálfstæðisflokkurinn styrkir einnig stöðu sína og fer úr 29,3 prósentum í 30,2 prósent. Miðflokkurinn stendur nær óbreyttur og mælist nú með 23,7 prósent samanborið við 23,8 prósent í síðustu mælingu.
Mesta fylgistapið mælist hjá Flokki fólksins sem fer úr 8,2 prósentum niður í 4,5 prósent. Viðreisn fer úr 7,8 prósentum í 5,7 prósent og Píratar úr 1,7 prósentum í 0,5 prósent. Á sama tíma eykur Framsóknarflokkurinn fylgi sitt úr 7,8 prósentum í 9,4 prósent.
Samkvæmt könnuninni segjast tæplega 49 prósent þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina. Það er nær óbreytt frá fyrri mælingu.
Þjóðarpúls Gallup byggir á netkönnun sem framkvæmd var dagana 30. apríl til 31. maí 2026. Heildarúrtakið var 12.979 einstaklingar og þátttökuhlutfall 40,8 prósent. Vikmörk á landsvísu eru á bilinu 0,4 til 1,3 prósentustig. Það er fréttastofa RÚV sem deilir niðursöðunum með Eyjafréttum.