Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Dagur Arnarsson og Ásdís Guðmundsdóttir. Mynd/HSÍ

Handknattleiksdómarasamband Íslands (HDSÍ) hefur afhent viðurkenningar til leikmanna í efstu deildum karla og kvenna sem þykja skara fram úr fyrir háttvísi, góða framkomu og heiðarleika innan vallar sem utan.

Viðurkenningarnar voru afhentar á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ sem fram fór í hádeginu í gær, þar sem verðlaun og viðurkenningar tímabilsins voru veitt.

Í karlaflokki hlaut Dagur Arnarsson, leikmaður ÍBV, viðurkenningu HDSÍ en í kvennaflokki kom hún í hlut Ásdísar Guðmundsdóttur úr Fram.

Viðurkenning HDSÍ er veitt þeim leikmönnum sem dómarar telja hafa sýnt af sér fyrirmyndarhegðun á keppnistímabilinu. Þar er horft til samskipta við dómara, andstæðinga og samherja, auk almennrar framkomu á leikvelli.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.