Vel heppnuð fimleikasýning
Góð mæting var á sýninguna í dag.

Hin árlega vorsýning Fimleikafélagsins Ránar fór fram í dag og var vel sótt.

Þema sýningarinnar í ár var Barbie og setti það skemmtilegan svip á viðburðinn. Nemendur frá 1. bekk og upp úr sýndu afrakstur vetrarins með fjölbreyttum og glæsilegum atriðum sem endurspegluðu þá vinnu og æfingar sem lagðar hafa verið í starfið síðustu mánuði.

Foreldrar voru fengnir til að taka þátt í sýningunni á einum tímapunkti, sem vakti mikla kátínu meðal gesta og bætti skemmtilegum blæ við dagskrána.

Sýningin tókst afar vel og var greinilegt að mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning hennar, bæði af hálfu iðkenda og þjálfara.

Myndir: Óskar Pétur Friðriksson.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.