Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á skemmtun, leiki, dorgveiðikeppni og fjölskyldufjör yfir daginn. Kvöldið endar með veglegri sjómannadagsskemmtun og balli í Höllinni.
Dagskrá 6. júní
11:00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Naust- hamars bryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar o.fl. Svali og prins póló fyrir alla þátttakendur.
11-15 Akóges Bílasýning Toyota
13:00 Sjómannafjör á Vigtartorgi Séra Viðar blessar daginn. Koddaslagur, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur, sjóstakkasund*. Blaðrarinn og Tröllið Tumi Tunna mæta á svæðið. Hoppukastalar. ÍBV verður með poppkorn, Kjörís gefur ís. Leikfélagið skemmtir. Andlitsmálun í boði TM.
13-15 Island Adventure býður upp á tuðruferðir fyrir alla.
14:00 Opnar vinnustofur í hvíta húsinu frá 14:00-17:00
20:00 Sjómannadagsskemmtun Húsið opnar kl. 19.00 með forréttahlaðborði og hefst borðhald kl. 20.00. Veislustjóri verður hinn bráðfyndni Andri Ívars og með honum verður Stebbi Jak og Marína Ósk. Uppistand, Föstudagslögin og fleira fjör yfir borðhaldi. Þá mun Herra Hnetusmjör líta við. Glæsilegt hlaðborð Einsa kalda ásamt skemmtun.
23:00 Sjómannadagsball í Höllinni Herra hnetusmjör, föstudagslögin: Stebbi Jak og Andri Ívars og Maríana Ósk. Eftir Herrann tekur svo DJ við í alvöru klúbbastemmara.