Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
Meðal þess sem kallað er eftir er að ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja verði aukið með fleiri sætum og tíðari ferðum. Eyjafrettir/Eyjar.net: TMS

Nýkjörin bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fyrsta fundi sínum bókun þar sem ríkisstjórn Íslands er skoruð á að grípa til aðgerða til að tryggja ásættanlegar samgöngur til og frá Vestmannaeyjum.

Bókunin kemur í kjölfar opins fundar Vegagerðarinnar og Vestmannaeyjabæjar sem haldinn var í Höllinni 2. júní þar sem farið var yfir stöðu Landeyjahafnar, dýpkunarmál og framtíðarskipulag samgangna. Á fundinn mættu á milli 400 og 500 manns.

Í bókuninni segir að óásættanleg staða hafi skapast í samgöngum við Vestmannaeyjar í vetur og vor þegar dýpkun Landeyjahafnar gekk illa samhliða bilun í Herjólfi IV. Afleiðingarnar hafi verið verulegt óhagræði fyrir íbúa og atvinnulíf auk neikvæðra áhrifa á ferðaþjónustu.

Kalla eftir dýpkun, flugi og varaskipi

Bæjarstjórn telur mikilvægt að gripið verði til tafarlausra aðgerða fyrir næsta vetur.

Meðal þess sem kallað er eftir er:

  • Að tryggt verði aukið fjármagn til viðbótardýpkunar Landeyjahafnar.
  • Að ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja verði aukið með fleiri sætum og tíðari ferðum.
  • Að til staðar verði haffært varaskip sem geti tekið við siglingum með stuttum fyrirvara þegar á þarf að halda.

Vill hraða varanlegri lausn

Til lengri tíma lítur bæjarstjórn svo á að flýta þurfi rannsóknum, umhverfismati og framkvæmdum sem miða að því að bæta nýtingu Landeyjahafnar.

Jafnframt er skorað á stjórnvöld að hefja undirbúning að smíði nýs systurskips við Herjólf IV, enda sé ferjufloti landsins orðinn aldraður og mikil þörf á endurnýjun.

Bókunin var undirrituð af öllum níu bæjarfulltrúum Vestmannaeyja, fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Eyjalista.

Nýjustu fréttir

Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.