
Breytingar á sorphirðu í fjölbýlishúsum við Foldahraun hafa vakið óánægju meðal íbúa. Einar Friðþjófsson, sem hefur um árabil séð um ruslageymslu við Foldahraun 41, segir í samtali við Eyjafréttir að nýtt fyrirkomulag taki ekki mið af aðstæðum í fjölbýlishúsum þar sem margir íbúar deila sömu sorpaðstöðu.
Málið hófst þegar íbúar fengu upplýsingar um að sorp yrði framvegis ekki hirt vikulega heldur á tveggja vikna fresti. Einar telur að sú breyting muni skapa vandamál sem ekki hafi verið til staðar áður.
„Við erum að tala um 18 íbúðir ekki eitt einbýlishús. Allar þessar íbúðir greiða sín sorphirðugjöld og eiga væntanlega kröfu á að sorpið verði hirt svo sómi sé að,“ segir Einar í erindi sem hann sendi umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar.
Í erindinu bendir hann á að sorp hafi verið hirt vikulega við Foldahraun 40 og 41 í að minnsta kosti 15 ár og að það fyrirkomulag hafi gengið vel. Þá segir hann hugmyndir um að íbúar fjölbýlishúsanna greiði aukalega fyrir að halda í vikulega hirðu vera hvorki sanngjarnar né skiljanlegar.
Einar hefur verið í samskiptum við forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar vegna málsins. Í svari Brynjars Ólafssonar, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar til Einars kemur fram að sveitarfélagið þurfi að gæta jafnræðis milli íbúa. Hann bendir á að við Foldahraun hafi sorp verið hirt vikulega um árabil þrátt fyrir að almennt sé miðað við losun á tveggja vikna fresti hjá heimilum í bænum.
Samkvæmt upplýsingum frá bænum hafa íbúar Foldahrauns jafnframt greitt mun lægri sorphirðugjöld en hefðbundið heimili þegar miðað er við það rúmmál íláta sem stendur til ráðstöfunar. Í svari Brynjars kemur fram að íbúar í Foldahrauni hafi greitt innan við helming þess sem hefðbundið heimili greiðir fyrir sorphirðu, á sama tíma og sorpið hafi verið losað oftar.
Bærinn hefur kynnt húsfélaginu tvo möguleika til úrbóta. Annars vegar að fjölga ílátum og hins vegar að óska eftir vikulegri hirðu. Samkvæmt upplýsingum frá Terra myndi slík þjónusta hins vegar leiða til 30 prósenta hækkunar á sorphirðugjöldum ílátanna.
Einar bendir á að ekki sé hægt að koma fleiri tunnum fyrir í núverandi ruslageymslu og telur því að þær lausnir sem lagðar hafa verið til leysi ekki þann vanda sem fjölbýlishúsið standi frammi fyrir.
Í svari bæjarins kemur jafnframt fram að við yfirferð á aðstöðu hússins hafi komið í ljós að fleiri ílát væru skráð á fasteignina en væru á staðnum. Verður það leiðrétt við næstu álagningu samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og framkvæmdasviði.
Brynjar segir að ef ekki sé hægt að koma fyrir fleiri eða stærri ílátum innandyra geti komið til greina að útbúa sérstakt sorpgerði utandyra á lóðinni til að mæta þörfum íbúanna á milli losana.
Málið snýst því annars vegar um það hvernig best sé að mæta þörfum stærri fjölbýlishúsa og hins vegar um jafnræði í þjónustu og gjaldtöku milli íbúa sveitarfélagsins.
