Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Baldur á leið til Vestmannaeyja. Þegar Herjólfur verður kominn í lag mun Baldur hefja á ný siglingar í Breiðafirði. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Viðgerð á rafmótor Herjólfs miðar vel, að því er fram kemur í nýrri stöðufærslu frá Herjólfi ohf. Tafir á afhendingu koparvírs urðu hins vegar til þess að viðgerðin dróst á langinn. Nú er unnið af fullum krafti á verkstæði í Hollandi og stefnt að því að henni ljúki um miðjan júlí.

Frá þessu greinir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., í færslu á Facebook-síðu Herjólfs.

Herjólfur hefur undanfarna mánuði siglt á annarri skrúfunni vegna bilunar í öðrum rafmótor ferjunnar. Undanfarnar vikur hefur Baldur sinnt siglingum með Herjólfi til að anna mikilli umferð milli lands og Eyja.

Tekinn úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa

Þegar viðgerð á mótornum lýkur verður Herjólfur tekinn úr áætlun á meðan mótorinn verður settur aftur í skipið. Áætlað er að sú vinna taki allt að fjóra sólarhringa.

Á meðan mun Baldur sinna átta ferðum á milli lands og Eyja.

Baldur heldur ekki áfram í Eyjasiglingum

Í færslunni kemur jafnframt fram að Baldur muni snúa aftur til siglinga í Breiðafirði um leið og Herjólfur verður kominn í fullan rekstur.

Ólafur segir jafnframt mikilvægt að leiðrétta þann misskilning sem hafi getað skapast vegna auglýsinga sem birtust fyrr í vikunni. Af þeim hafi mátt ráða að Baldur yrði áfram í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja, en svo verði ekki.

Átta ferðir til 23. ágúst

Þegar Herjólfur verður kominn í fullan rekstur mun skipið sigla hefðbundinni átta ferða áætlun til og með 23. ágúst. Eftir það tekur við sjö ferða áætlun.

Að lokum hvetur Herjólfur ohf. fólk til að heimsækja Vestmannaeyjar í sumar og minnir á að „Vestmannaeyjar eru alltaf góð hugmynd.“

Nýjustu fréttir

Hafsbotnsmælingar vegna Eyjaganga hefjast í næstu viku
Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.