Nýr áfangi í rannsóknum vegna fyrirhugaðra jarðganga milli lands og Vestmannaeyja hefst í næstu viku þegar hafsbotnsmælingar fara af stað í Eyjasundi.
Mælingarnar eru unnar á vegum Eyjaganga í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands og marka upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu.
Fram kemur á vef Eyjaganga að áætlað sé að mælingarnar hefjist 1. júlí og standi yfir í allt að tvær vikur.
Undirbúningur verkefnisins er á lokastigi og er landmælingaskipið Baldur, í eigu Landhelgisgæslu Íslands, væntanlegt til Vestmannaeyja á sunnudagskvöld.
Um borð verða tveir erlendir sérfræðingar frá hollenska fyrirtækinu Geo Marine Survey Systems sem munu vinna með sérfræðingum ÍSOR við framkvæmd mælinganna og gagnaöflun.
Um er að ræða svokallaðar hljóðendurvarpsmælingar sem notaðar eru til að kortleggja jarðlög undir hafsbotninum.
Með því að senda hljóðbylgjur niður í hafsbotninn og mæla bergmálið sem endurkastast er hægt að fá nákvæma mynd af þykkt og gerð setlaga og bergs. Slíkar upplýsingar eru lykilatriði við hönnun og skipulag mögulegra neðansjávarganga.
Fram kemur í tilkynningu Eyjaganga að niðurstöður mælinganna muni veita mikilvæga innsýn í jarðfræði svæðisins milli lands og Eyja og nýtast við áframhaldandi fýsileikamat verkefnisins.