Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað
Viðburður í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar fellur niður vegna verkefna stofnunarinnar
Fyrirhugað var að opna varðskipið Þór fyrir gestum á afmælisdegi Landhelgisgæslunnar, 1. júlí, en viðburðinum hefur verið aflýst. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Fyrirhuguð afmælishátíð Landhelgisgæslu Íslands í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1. júlí hefur verið frestað vegna verkefna Landhelgisgæslunnar í vikunni.

Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, samskiptastjóra Landhelgisgæslunnar helgast það af verkefnum Landhelgisgæslunnar í vikunni. „Því þurfum við að aflýsa fyrirhuguðum afmælisviðburði. Við viljum koma á framfæri kærum þökkum til Eyjamanna sem hafa verið einstaklega liðlegir að aðstoða okkur við undirbúninginn.“

Landhelgisgæslan fagnar engu að síður 100 ára afmæli sínu miðvikudaginn 1. júlí. Upphaflega stóð til að halda afmælisdagskrá í Vestmannaeyjum á afmælisdaginn með “opnu húsi” um borð í varðskipinu Þór og heimsókn forseta Íslands og dómsmálaráðherra..

„Saga Landhelgisgæslunnar hefst að mörgu leyti í Vestmannaeyjum“

Í viðtali sem Eyjafréttir tóku nýlega við Ásgeir Erlendsson sagði hann að það væri engin tilviljun að afmælishátíðin hefði verið skipulögð í Vestmannaeyjum.

„Segja má að saga Landhelgisgæslunnar hefjist í Vestmannaeyjum þegar stórhuga Eyjamenn fjárfestu í björgunarskipinu Þór á þriðja áratug síðustu aldar. Íslenska ríkið eignaðist skipið 1. júlí 1926 og sá dagur markar stofnun Landhelgisgæslunnar.“

Ásgeir benti jafnframt á að tengsl Eyjanna og Landhelgisgæslunnar hafi verið sterk allar götur síðan. Vestmannaeyjar hafi meðal annars verið fyrsti viðkomustaður björgunarþyrlunnar TF-LÍF þegar hún kom til landsins árið 1995 og einnig fyrsti viðkomustaður nýja varðskipsins Þórs þegar það kom til Íslands árið 2011.

Hann sagði einnig að saga Landhelgisgæslunnar væri samofin sjálfstæðis- og fullveldisbaráttu þjóðarinnar og að þorskastríðin hefðu markað einn mikilvægasta kafla í sögu stofnunarinnar.

Þótt afmælishátíðin fari ekki fram að þessu sinni stendur sjálfur afmælisdagurinn óbreyttur og miðvikudaginn 1. júlí verða liðin 100 ár frá stofnun Landhelgisgæslu Íslands.

Nýjustu fréttir

Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað
Litla-Hraun jafnað við jörðu
Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.