Fyrirhuguð afmælishátíð Landhelgisgæslu Íslands í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1. júlí hefur verið frestað vegna verkefna Landhelgisgæslunnar í vikunni.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, samskiptastjóra Landhelgisgæslunnar helgast það af verkefnum Landhelgisgæslunnar í vikunni. „Því þurfum við að aflýsa fyrirhuguðum afmælisviðburði. Við viljum koma á framfæri kærum þökkum til Eyjamanna sem hafa verið einstaklega liðlegir að aðstoða okkur við undirbúninginn.“
Landhelgisgæslan fagnar engu að síður 100 ára afmæli sínu miðvikudaginn 1. júlí. Upphaflega stóð til að halda afmælisdagskrá í Vestmannaeyjum á afmælisdaginn með “opnu húsi” um borð í varðskipinu Þór og heimsókn forseta Íslands og dómsmálaráðherra..
Í viðtali sem Eyjafréttir tóku nýlega við Ásgeir Erlendsson sagði hann að það væri engin tilviljun að afmælishátíðin hefði verið skipulögð í Vestmannaeyjum.
„Segja má að saga Landhelgisgæslunnar hefjist í Vestmannaeyjum þegar stórhuga Eyjamenn fjárfestu í björgunarskipinu Þór á þriðja áratug síðustu aldar. Íslenska ríkið eignaðist skipið 1. júlí 1926 og sá dagur markar stofnun Landhelgisgæslunnar.“
Ásgeir benti jafnframt á að tengsl Eyjanna og Landhelgisgæslunnar hafi verið sterk allar götur síðan. Vestmannaeyjar hafi meðal annars verið fyrsti viðkomustaður björgunarþyrlunnar TF-LÍF þegar hún kom til landsins árið 1995 og einnig fyrsti viðkomustaður nýja varðskipsins Þórs þegar það kom til Íslands árið 2011.
Hann sagði einnig að saga Landhelgisgæslunnar væri samofin sjálfstæðis- og fullveldisbaráttu þjóðarinnar og að þorskastríðin hefðu markað einn mikilvægasta kafla í sögu stofnunarinnar.
Þótt afmælishátíðin fari ekki fram að þessu sinni stendur sjálfur afmælisdagurinn óbreyttur og miðvikudaginn 1. júlí verða liðin 100 ár frá stofnun Landhelgisgæslu Íslands.