Þegar siðareglum er beitt til að forðast umræðu
Sæunn Magnúsdóttir og Jón Þór Guðjónsson.

Aðsend grein

Jón Þór Guðjónsson og Sæunn Magnúsdóttir

Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar lögðu bæjarfulltrúar Miðflokksins fram bókun undir dagskrárliðnum um ráðningu bæjarstjóra. Þar var þeirri afstöðu lýst að tímabært væri að skipta um forystu sveitarfélagsins í ljósi þeirra upplýsinga sem komið hafa fram um slæman starfsanda og framkomu gagnvart starfsfólki. Jafnframt var lögð fram tillaga um að Trausti Hjaltason yrði ráðinn bæjarstjóri.

Þetta var pólitísk afstaða við eitt mikilvægasta ákvörðunarefni sem bæjarstjórn tekur. Ráðning bæjarstjóra er ekki hefðbundið starfsmannamál heldur ákvörðun sem bæjarstjórn ber sjálf ábyrgð á samkvæmt lögum. Það er því bæði eðlilegt og nauðsynlegt að bæjarfulltrúar geri grein fyrir sjónarmiðum sínum þegar slíkt mál er til afgreiðslu.

Því vekur það furðu að á næsta bæjarstjórnarfundi skyldi Sjálfstæðisflokkurinn velja að gagnrýna bókun Miðflokksins undir dagskrárliðnum um siðareglur kjörinna fulltrúa. Það verður að teljast nokkuð langsótt. Ef bókunin hefði verið jafn ómerkileg og látið var í veðri vaka hefði vart verið talin ástæða til að taka hana sérstaklega fyrir á næsta fundi. Viðbrögðin gefa frekar til kynna að bókunin hafi hitt í mark og valdið óþægindum. Gamla orðatiltækið segir einmitt að sannleikurinn geti verið sár.

Í málflutningi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins kom fram að ekki ætti að ræða starfsmannamál þar sem slíkt bryti gegn siðareglum. Sú túlkun stenst hins vegar illa. Þegar bæjarstjórn fjallar um ráðningu bæjarstjóra er hún ekki að ræða almennt starfsmannamál heldur að taka ákvörðun um æðsta framkvæmdastjóra sveitarfélagsins. Það voru sjálfir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem settu ráðningu bæjarstjóra á dagskrá. Þá hlýtur að vera heimilt að ræða þau atriði sem bæjarfulltrúar telja skipta máli við ákvörðunina.

Athugasemdir Eyþórs Harðarsonar dæma sig að mörgu leyti sjálfar. Ef svo er að ekki megi víkja að neinum þáttum sem tengjast starfsumhverfi eða stjórnunarháttum, vaknar einnig sú spurning hvort ræða Kjartans Vídó Ólafssonar hafi sjálf farið inn á það svið þegar hann tók undir gagnrýni á bókun Miðflokksins. Það verður erfitt að beita siðareglum með mismunandi hætti eftir því hver á í hlut.

Það sem vekur þó mestar áhyggjur er ef siðareglur eiga að verða tæki til að þagga niður í áhyggjum eða óþægilegri umræðu. Slíkt þjónar hvorki lýðræðinu né hagsmunum sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar eiga að geta rætt málefni sem skipta íbúa máli af hreinskilni, sérstaklega þegar um er að ræða ráðningu þess sem fer með æðstu stjórn sveitarfélagsins.

Eyþór Harðarson virtist einnig eiga erfitt með að skilja hvers vegna Miðflokkurinn lagði ekki til eigið bæjarstjóraefni. Skýringin er einföld. Miðflokkurinn studdi ekki bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins en taldi rétt að reyna að ná breiðari sátt um annan einstakling. Trausti Hjaltason naut og nýtur trausts Miðflokksins og var að okkar mati góður kostur sem fleiri hefðu getað sameinast um. Það er hvorki óeðlilegt né flókið sjónarmið heldur dæmi um tilraun til að ná pólitískri sátt í mikilvægu máli.

Miðflokkurinn stendur því fyllilega við bókun sína. Hún var lögð fram á réttum stað, við rétt málefni og byggðist á þeirri ábyrgð sem kjörnir fulltrúar bera gagnvart íbúum. Tilraunir til að gera hana að siðferðislegu álitamáli breyta engu um efni hennar. Þær sýna fremur að auðveldara er að ráðast að þeim sem bera á borð óþægileg sjónarmið en að svara þeim efnislega.

 

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Vestmannaeyjum,

Jón Þór Guðjónsson og Sæunn Magnúsdóttir.

Nýjustu fréttir

Þegar siðareglum er beitt til að forðast umræðu
Goslok: dagskrá föstudags
Fyrsta tölublað Eyjafrétta sem kemur eingöngu út á vefnum
Þórir Baldursson í Eldheimum í kvöld
Umferðin tók vel við sér í júní
Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir í Pálsstofu á Goslokahátið
Samfélag í sókn þarf samgöngur sem duga
Ábyrgð í verki: Vestmannaeyjabær styður við verðbólgumarkmiðið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.