Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Herjólfur á siglingu frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Herjólfur stefnir nú á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi í dag vegna veðurskilyrða við Suðurland.

Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 7:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45.

Ferðir skipsins klukkan 8:15 og 9:30 falla hins vegar niður. Farþegar sem eiga bókað í þær ferðir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til að færa bókanir sínar.

Fram kemur í tilkynningu skipafélagsins að næsta tilkynning um siglingar verði gefin út fyrir klukkan 11:00 í dag. Samkvæmt veðurspá er gert ráð fyrir að veðrið gangi niður þegar líða tekur á daginn.

Nýjustu fréttir

Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.