Myndasyrpa frá göngumessu
Sigurður Georgsson og Grétar Þórarinsson nutu veðurblíðunnar í göngumessunni. Hér kasta þeir mæðinni í gíg Eldfells. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Göngumessa er fastur liður á Goslokahátíð og var hún vel sótt að þessu sinni enda skörtuðu Eyjarnar sínu fegursta. Gengið var frá Landakirkju upp í gíg Eldfells þar sem séra Guðmundur Örn Jónsson og Guðni Hjálmarsson stýrðu helgistund. Kitty stýrði söng og lék í messunni ásamt félögum úr Lúðrasveit Vestmannaeyja. Að henni lokinni var haldið að Stafkirkjunni á Skansinum þar sem heit súpa, brauð og kaffi biðu göngugarpanna.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var með í för og smellti meðfylgjandi myndum.

Nýjustu fréttir

Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Vilja herða reglur við Surtsey
Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.