Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Viðgerðir á rafmótor Herjólfs IV eru á áætlun, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Gert er ráð fyrir að mótorinn verði sendur með skipi frá Hollandi 13. júlí.

Þegar mótorinn berst til landsins verður hann settur í Herjólf. Að uppsetningu lokinni er gert ráð fyrir að ferjan taki aftur upp hefðbundnar siglingar með fullu afli.

Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur jafnframt fram að ferjan Baldur, sem hefur sinnt hluta af siglingum milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar undanfarna mánuði, muni snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið.

Nýjustu fréttir

Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Vilja herða reglur við Surtsey
Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.