Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja leggur til að minnisvarði um björgunarskipið Þór, sem síðar varð fyrsta skip Landhelgisgæslunnar, verði færður frá núverandi stað í botni Friðarhafnar. Að mati ráðsins hefur minnisvarðinn horfið inn í umhverfið eftir uppbyggingu á svæðinu og njóti sín því ekki sem skyldi.
Í fundargerð ráðsins kemur fram að umræður hafi verið um staðsetningu minnisvarðans í tengslum við 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar. Afmælishátíð sem fyrirhuguð var á Nausthamarsbryggju 1. júlí þurfti hins vegar að fresta vegna anna hjá Landhelgisgæslunni.
Ráðið leggur til að minnisvarðinn verði reistur á hentugri stað þar sem betur verði minnst eljusemi Eyjamanna við kaup á björgunarskipinu Þór, sem síðar varð fyrsta skip Landhelgisgæslunnar.
Hafnarstjóra hefur verið falið að leiða samtal við helstu hagsmunaaðila um efnislega útfærslu og nýja staðsetningu minnisvarðans. Við þá vinnu verður meðal annars horft til sögulegs gildis, samfélagslegs aðdráttar, kostnaðar og skipulagsmála.
