Matarþjónusta eldri borgara færist í Vöruhúsið
Samningurinn handsalaðaur. Anton Örn Eggertsson og Íris Róbertsdóttir. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær hefur lokið lögbundnu útboði á matarþjónustu fyrir eldri borgara. Samkvæmt reglum um opinber innkaup var sveitarfélaginu skylt að bjóða þjónustuna út þegar gildandi samningur rann sitt skeið. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.

Við útboðið barst eitt tilboð, frá Vöruhúsinu, sem uppfyllti skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt. Vöruhúsið mun því annast matarþjónustu fyrir eldri borgara á samningstímanum og var samningur þess efnis undirritaður af Antoni Erni Eggertssyni fyrir hönd Vöruhússins og Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar.

Fram til þessa hefur veitingastaðurinn Gott sinnt þessari þjónustu. Af þessu tilefni vill Vestmannaeyjabær færa veitingastaðnum Gott innilegar þakkir fyrir afar gott og farsælt samstarf undanfarin ár. Starfsfólk Gott hefur sinnt matarþjónustunni af fagmennsku, alúð og metnaði og lagt sitt af mörkum til að tryggja eldri borgurum bæjarins góða og áreiðanlega þjónustu. Fyrir það er bæjarfélagið afar þakklátt.

Vestmannaeyjabær býður Vöruhúsið velkomið til samstarfs og hlakkar til að vinna með fyrirtækinu að því mikilvæga verkefni að veita eldri borgurum áfram góða, örugga og vandaða þjónustu.

Nýjustu fréttir

Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Nýjungar og verðlaun á sjávarútvegssýningunni – myndir frá IceFish
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.