Þegar loksins kemur alvöru sumarveður í Eyjum er um að gera að nýta það. Það gerði Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, á sunnudaginn þegar hann skellti sér í siglingu með fjölskyldunni á sæþotu og hraðbát, í boði Guðmundar Pálssonar múrarameistara.
Með í för voru dóttir hans, Valgerður Erla, og Brynjólfur Ásgeir, maður hennar, ásamt barnabörnunum Kára Kristni, Malín Erlu og Emil Sölva. Tyson einnig með í fjörinu.
Aðstæður gátu varla verið betri. Sólin skein, sjórinn var nánast spegilsléttur og Eyjarnar skörtuðu sínu fegursta. Stefnan var meðal annars tekin á Klettshelli þar sem skemmtiferðaskipið Viking Mars lá skammt undan og kúrir þar heldur tignarlegt í blíðunni.
Farþegum skipsins var siglt í land með léttabátum á meðan fjölskyldan naut lífsins á sjónum. Yngri kynslóðin fékk að sjálfsögðu að prófa sæþotuna og þar var ekkert gefið eftir. Öryggið var þó í fyrsta sæti og börnin vel búin í flotgöllum og björgunarvestum áður en haldið var af stað.
Það var líka nóg að sjá á leiðinni. Stór skemmtiferðaskip voru sitthvoru megin við Ystaklett og mitt á milli þeirra virtist Herjólfur heldur smár í samanburðinum.
Óskar Pétur var að sjálfsögðu með myndavélina við höndina og náði skemmtilegum myndum úr ferðinni; af fjölskyldunni, sæþotufjörinu, skipunum og ekki síst Eyjunum í sínu allra besta sumarskapi.
„Svona dagar minna mann á að það þarf ekki alltaf að fara langt til að komast í ævintýri. Stundum nægir sól, sléttur sjór, góðir ferðafélagar og sæþota – og þá er ekki verra að hafa Vestmannaeyjar sem leikvöll,“ sagði Óskar Pétur.







