Fjölskyldufjör á sjó í blíðunni
Sæþota, hraðbátur og Klettshellir í sól og spegilsléttum sjó
Myndin er tekin í Klettshelli. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Þegar loksins kemur alvöru sumarveður í Eyjum er um að gera að nýta það. Það gerði Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, á sunnudaginn þegar hann skellti sér í siglingu með fjölskyldunni á sæþotu og hraðbát, í boði Guðmundar Pálssonar múrarameistara. 

Með í för voru dóttir hans, Valgerður Erla, og Brynjólfur Ásgeir, maður hennar, ásamt barnabörnunum Kára Kristni, Malín Erlu og Emil Sölva. Tyson einnig með í fjörinu. 

Aðstæður gátu varla verið betri. Sólin skein, sjórinn var nánast spegilsléttur og Eyjarnar skörtuðu sínu fegursta. Stefnan var meðal annars tekin á Klettshelli þar sem skemmtiferðaskipið Viking Mars lá skammt undan og kúrir þar heldur tignarlegt í blíðunni. 

Farþegum skipsins var siglt í land með léttabátum á meðan fjölskyldan naut lífsins á sjónum. Yngri kynslóðin fékk að sjálfsögðu að prófa sæþotuna og þar var ekkert gefið eftir. Öryggið var þó í fyrsta sæti og börnin vel búin í flotgöllum og björgunarvestum áður en haldið var af stað. 

Það var líka nóg að sjá á leiðinni. Stór skemmtiferðaskip voru sitthvoru megin við Ystaklett og mitt á milli þeirra virtist Herjólfur heldur smár í samanburðinum. 

Óskar Pétur var að sjálfsögðu með myndavélina við höndina og náði skemmtilegum myndum úr ferðinni; af fjölskyldunni, sæþotufjörinu, skipunum og ekki síst Eyjunum í sínu allra besta sumarskapi. 

„Svona dagar minna mann á að það þarf ekki alltaf að fara langt til að komast í ævintýri. Stundum nægir sól, sléttur sjór, góðir ferðafélagar og sæþota – og þá er ekki verra að hafa Vestmannaeyjar sem leikvöll,“ sagði Óskar Pétur. 

Öryggið fyrir öllu, börnin sett í flotgalla og björgunarvestin fyrir þotusiglinguna.

 

Kári Kristinn, Malín Erla og Brynjólfur Ásgeir leggja af stað á þotunni.

 

Mæður í sjálfu fyrir sjóferð á sæþotu.

 

Valgerður og Brynjólfur leggja af stað út í Klettshelli.

 

Viking Mars kúrir utan við Klettshelli og farþegum siglt í land með léttabátum.

 

Rennilegt stefni Viking Mars við Klettshelli.

 

Stór skemmtiferðaskip sitthvoru megin við Ystaklett og Herjólfur sýnist lítill samanborið við þau.

 

Guðmundur Pálsson á sjónum. Fleiri myndir úr ferðinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.