Hver Þjóðhátíð hefur sinn sjarma

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið.

Nafn: Lilja Dröfn Kristinsdóttir

Fjölskylda: Ég kem úr Ás-ættinni. Móðir mín heitir Magnea Richardsdóttir og faðir minn, heitinn, hét Kristinn Þór Hansson. Maðurinn minn heitir Sigurður og við eigum tvö börn, þau Sigurð Gauta og Emblu Dís.

Hvernig leggst Þjóðhátíðin í þig? Hún leggst ótrúlega vel í mig. Þjóðhátíð er alltaf jafn skemmtileg og hver hátíð hefur sinn einstaka sjarma.

Hversu oft hefur þú farið á Þjóðhátíð? Ég er ekki með nákvæma tölu á því, en þær eru ansi margar. Fyrsta Þjóðhátíðin mín var árið 1990, þegar ég var tveggja ára gömul.

Hvað stendur upp úr á hverju ári? Samveran með fjölskyldu og vinum stendur alltaf upp úr. Börnin mín elska Þjóðhátíð og mig langar svo að þau fái að upplifa hana á sama hátt og ég gerði þegar ég var barn.

Uppáhalds Þjóðhátíðarhefð? Við erum með þema í tjaldinu okkar á hverju ári og það er ótrúlega skemmtileg hefð. Í ár er þemað „Sailor“, þannig að blár, hvítur og rauður verða í aðalhlutverki.

Hvert er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið? Það er erfitt að velja bara eitt lag, en Lífið er yndislegt stendur upp úr hjá mér. Það minnir mig á Þjóðhátíðina árið 2001, þegar allt small saman – lagið, veðrið, bekkjabílarnir og einstök stemning. Þá vorum við æskuvinkonurnar á fermingaraldri og nutum hátíðarinnar svo sannarlega.

Hvað má ekki vanta í hvíta tjaldið? Það má aldrei vanta góða skapið og góðar kræsingar. Ég elska líka að rölta um og kíkja inn í hvítu tjöldin og sjá hversu mikinn metnað fólk leggur í skreytingarnar. Sjálfri finnst mér einstaklega gaman að skreyta og dúlla mér við að gera tjaldið okkar notalegt og fallegt.

Góða skemmtun og gleðilega Þjóðhátíð!

Nýjustu fréttir

Dýpið gott í Landeyjahöfn
Fermingarfræðslan hefst á sunnudaginn
Þórarinn Björn ráðinn forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar
Handboltinn númer eitt – smíðin með í för 
Ríkið hafnar beiðni bæjarins um niðurfellingu virðisaukaskatts
Aðalfundur Farsæls haldinn 25. september
Eyjakonur hefja lokasprettinn á heimavelli
ÍBV með ótrúlegan endurkomusigur gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.