Eyjamaðurinn Páll Magnússon tekur við einum þekktasta umræðuþætti landsins – Fyrsti þátturinn daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið – „Það verður þá um eitthvað að tala“
Eyjamaðurinn Páll Magnússon, gamalreyndur fjölmiðlamaður og fyrrverandi þingmaður, tekur við stjórn Sprengisands á Bylgjunni af Kristjáni Kristjánssyni. Páll sest fyrst í stjórnendasætið sunnudaginn 30. ágúst og óhætt er að segja að hann fari beint í djúpu laugina.
Daginn áður, laugardaginn 29. ágúst, fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópusambandið. Hvernig sem úrslitin verða má því gera ráð fyrir að nóg verði að ræða á Sprengisandi morguninn eftir – og líklega sitt sýnist hverjum. „Það verður þá um eitthvað að tala,“ segir Páll léttur. Kolbeinn Tumi Daðason stýrir þættinum sunnudaginn 23. ágúst áður en Páll tekur formlega við viku síðar.
Sagan fer í hring
Það er skemmtileg saga á bak við endurkomu Páls í þáttinn. Hann stýrði Sprengisandi um skeið fyrir áratug en lét af því þegar hann ákvað að bjóða sig fram til Alþingis árið 2016. Þá tók Kristján við keflinu og hefur stýrt þættinum síðan.
„Svona getur sagan stundum farið í skemmtilega hringi. Ég var með þennan þátt um skeið fyrir áratug, þangað til ég ákvað að fara í framboð til Alþingis 2016, og þá tók Kristján við keflinu og stýrði þættinum í tíu ár. Og nú tek ég aftur við,“ segir Páll.
Hann er þó langt frá því að vera ókunnugur Sprengisandi eftir þessa tíu ára fjarveru. Hann hefur leyst af við stjórn þáttarins nokkrum sinnum á undanförnum árum, meðal annars í maí og júní í sumar.
Páll segir verkefnið fela í sér mikla bindingu og kröfurnar séu miklar, en að sama skapi sé það spennandi. „Ég lít á Sprengisand sem einn mikilvægasta vettvanginn fyrir djúpa pólitíska og samfélagslega umræðu í landinu og hlakka til að takast á við þetta.“
Eyjamaður með langan fjölmiðlaferil
Páll þarf vart að kynna fyrir Eyjamönnum. Hann á að baki langan og farsælan feril í íslenskum fjölmiðlum, meðal annars sem fréttamaður, fréttastjóri og útvarpsstjóri RÚV. Síðar sneri hann sér að stjórnmálum og sat á Alþingi fyrir Suðurkjördæmi.
Eyjatengingin hefur alla tíð verið sterk. Páll hefur verið virkur í bæjarmálum í Vestmannaeyjum og var forseti bæjarstjórnar á síðasta kjörtímabili.
Nú liggur leiðin aftur að hljóðnemanum og á kunnuglegar slóðir á Sprengisandi. Og miðað við tímasetninguna á fyrsta þættinum ætti hvorki að skorta umræðuefni né skoðanir.
Það það þarf ekki upphitun þegar Eyjamaðurinn sest aftur í stólinn 30. ágúst. Sprengisandur verður strax sannkallað sprengjusvæði.