Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur valið 22 leikmenn sem koma saman til æfinga mánudaginn 21. september. Æfingar liðsins standa út þá viku.
Andrea Jacobsen og Sandra Erlingsdóttir, leikmenn ÍBV, eru báðar í hópnum. Þá er Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir einnig í hópnum, en hún leikur með Blomberg-Lippe í Þýskalandi.
Þetta verður í síðasta sinn sem liðið kemur saman hér á landi fyrir Evrópumótið. Liðið kemur næst saman í október þegar það stelpurnar mæta Póllandi í tveimur vináttulandsleikjum ytra.
Hópinn má sjá hér að neðan:
Markverðir
- Hafdís Renötudóttir, Valur (79/5)
- Sara Sif Helgadóttir, Haukar (/)
- Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0)
Aðrir leikmenn
- Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukar (7/3)
- Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thüringer HC (16/11)
- Andrea Jacobsen, ÍBV (69/117)
- Dana Björg Guðmundsdóttir, Larvik (21/50)
- Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (74/103)
- Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (36/138)
- Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (41/84)
- Embla Steindórsdóttir, Haukar (0/0)
- Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, Selfoss (0/0)
- Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (23/35)
- Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (36/40)
- Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19)
- Lovísa Thompson, Benfica (40/74)
- Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (10/1)
- Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (13/12)
- Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (48/200)
- Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (6/12)
- Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (6/2)
- Thea Imani Sturludóttir, SCM Craiova (98/224)