Karlalið ÍBV tekur á móti Val í Bestu deild karla á Hásteinsvelli í dag. Um er að ræða aðra umferðina í neðri hluta deildarinnar. ÍBV tapaði 2:0 fyrir Stjörnunni í Garðabæ í fyrstu umferðinni eftir skiptingu, en Valur vann öruggan 4:1-sigur á Þór.
ÍBV er í sjötta sæti neðri hlutans með 18 stig. Valur er í öðru sæti með 30 stig, einu stigi á eftir Stjörnunni.
Mikilvæg stig eru í húfi fyrir Eyjamenn, sem þurfa nauðsynlega á góðum úrslitum að halda í fallbaráttunni. Fjórir leikir eru eftir af tímabilinu, leikurinn gegn Val í dag meðtalinn. Að honum loknum mæta Eyjamenn Þór og KA á útivelli en FH á Hásteinsvelli.
Stuðningur áhorfenda getur vegið þungt á lokasprettinum og eru Eyjamenn hvattir til að fjölmenna á völlinn. Flautað verður til leiks á Hásteinsvelli klukkan 16:00 í dag.