Bæjarráð Vestmannaeyja hefur skipað sex fulltrúa í goslokanefnd fyrir árið 2027. Erna Georgsdóttir verður formaður nefndarinnar.
Bæjarráð samþykkti skipan nefndarinnar samhljóða á fundi sínum á miðvikudag. Auk Ernu eiga sæti í nefndinni Magnús Bragason, Birgir Níelsen, Dóra Björk Gunnarsdóttir, Súsanna Georgsdóttir og Gígja Óskarsdóttir.
Með goslokanefndinni starfa jafnframt framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar og forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar. Nefndin hefur það hlutverk að undirbúa Goslokahátíðina 2027.