Austanvindur mældist 37 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan 6 í morgun og mesta vindhviða 45 metrar á sekúndu. Vindur hefur aukist hratt á síðustu klukkustundum.
Klukkan 4 í nótt mældist vindur 25 m/s og hviður 31 m/s. Klukkustund síðar var vindurinn kominn í 29 m/s og hviður í 37 m/s, samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands.
Úrkoma síðustu klukkustundar mældist 4,3 millimetrar klukkan 6 og hitinn var 4,1 stig.
Appelsínugul viðvörun fyrir Suðurland gildir frá klukkan 5 til 10. Veðurstofan varar við engu ferðaveðri og því að lausamunir geti fokið.
Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur hvatt foreldra og forráðamenn til að fylgjast vel með aðstæðum þegar börn og ungmenni halda til skóla. Bæjarbúar eru jafnframt hvattir til að tryggja lausamuni og gæta sérstaklega að öðrum vegfarendum.
Uppfært kl. 7.10:
Austanvindur mældist 42 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan 7 í morgun og mesta vindhviða 50 metrar á sekúndu, samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands. Hitinn á Stórhöfða var 5,2 stig klukkan 7 og úrkoma síðustu klukkustundar mældist 2,1 millimetri.
Uppfært kl. 7.30:
Arnór Arnórsson hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja segir í svari við fyrirspurn Eyjafrétta að rólegt sé hjá félaginu og engin útköll hafi borist vegna veðursins.
Hann minnir á að ef fólk þurfi aðstoð skuli beiðni um hana fara í gegnum 112.
Uppfært kl. 7.44:
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands frá klukkan 6:50 í morgun kemur fram að lægðin sé óvenjudjúp. Nýjustu spár geri ráð fyrir að þrýstingur í miðju hennar verði um 930 hPa um hádegisbil, þegar hún verði skammt sunnan Vestmannaeyja.
Lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur hér á landi í október er 938,4 hPa, þann 19. október 1963. Samkvæmt Veðurstofunni gæti það met fallið í dag ef spár ganga eftir.
Síðdegis er gert ráð fyrir að miðja lægðarinnar gangi inn á land og þá dragi úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands. Jafnframt er bent á möguleika á eldingum í skilunum.
Á kortinu hér að neðan má skoða vindaspá Windy fyrir Vestmannaeyjar og nágrenni. Með tímastikunni má sjá áætlaða þróun vinds næstu klukkustundir. Kortið sýnir líkanaspá, ekki rauntímamælingar.