Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Innviðaráðherra telur vel koma til greina að skoða tilraunir með sjálfkeyrandi bíla á Heimaey. Hugmyndin var rædd á Alþingi í gær. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir vel koma til greina að skoða tilraunir með sjálfkeyrandi bíla á Heimaey. Þetta kom fram í svari hans við hugmynd Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, í umræðum á Alþingi í gær.

Í umræðu um sjálfkeyrandi bíla mánudaginn 19. október velti Sigríður því upp hvort Ísland ætti að taka skref umfram önnur lönd og velja ákveðin svæði til að prófa tæknina. Nefndi hún Vestmannaeyjar sérstaklega sem mögulegan vettvang tilrauna, til dæmis í almenningssamgöngum.

„Ég nefni Vestmannaeyjar af því hér tók til tals þingmaðurinn knái frá Vestmannaeyjum; þar væri t.d. hægt að prófa þessa bíla, t.d. í almenningssamgöngum,“ sagði Sigríður.

Heimaey kæmi vel til greina

Innviðaráðherra tók jákvætt í hugmyndina og sagði Ísland að mörgu leyti góðan prófunarmarkað fyrir nýjar vörur og tækni. Hér væri lítill en kröfuharður markaður þar sem auðvelt væri að prófa nýja hluti.

„Ég tel að það kæmi vel til greina að skoða það varðandi sjálfkeyrandi bíla á ákveðnum svæðum, jafnvel á lítilli eyju sem heitir Heimaey, það kæmi vel til greina,“ sagði Eyjólfur.

Hann sagðist taka tækniþróuninni fagnandi og vilja að áfram yrði unnið að aukinni sjálfvirkni í samgöngum.

Greina þarf stöðu vegakerfisins

Að sögn ráðherra er næsta skref, í samræmi við tillögu Vegagerðarinnar, að ráðast í heildstæða stöðugreiningu á undirbúningi íslenska þjóðvegakerfisins fyrir aukna sjálfvirkni.

Greiningin á meðal annars að ná til vegmerkinga, skilta og hönnunar innviða, viðhalds vega og vetrarþjónustu, stafrænna vegagagna og rauntímaupplýsinga auk fjarskipta á þjóðvegum.

Eyjólfur sagði nauðsynlegt að kortleggja stöðuna vel svo hægt væri að innleiða tæknina með öruggum hætti. Niðurstöðurnar mætti síðan nýta við hönnun, útboð og kröfur um viðhald.

„Við viljum ekki slaka á kröfum hvað varðar umferðaröryggi,“ sagði ráðherra. Ekki kom fram ákvörðun um tilraunaverkefni í Vestmannaeyjum, en bæði þingmaðurinn og ráðherrann nefndu Eyjar sem mögulegan vettvang til að prófa tæknina.

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.