
Vestmannaeyjabær er ósammála lagamati innviðaráðuneytisins í þremur úrskurðum þar sem uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins voru taldar ólögmætar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á niðurstöðurnar fyrir dómstólum.
Þetta kemur fram í svörum Vestmannaeyjabæjar við fyrirspurn Eyjafrétta. Þar staðfestir bærinn jafnframt að þriðji úrskurðurinn hafi borist 28. ágúst síðastliðinn.
Bærinn upplýsir ekki hvort sá úrskurður hafi verið tekinn formlega fyrir í bæjarráði, bæjarstjórn eða öðrum ráðum og nefndum. Þá kemur ekki fram hvort úrskurðirnir hafi þegar leitt til breytinga á verklagi, ábyrgðarskiptingu eða aðkomu lögfræðiráðgjafa að starfsmannamálum.
Vestmannaeyjabær segir málin enn til skoðunar og tekur fram að sveitarfélagið muni ekki svara frekari fyrirspurnum um þau meðan afstaða til mögulegrar frekari málsmeðferðar liggur ekki fyrir.
Vestmannaeyjabær óskaði eftir að svörin yrðu birt óbreytt og í heild sinni, hvert í beinum tengslum við viðkomandi spurningu. Spurningar Eyjafrétta og svör bæjarins fara hér á eftir:
Vestmannaeyjabær hefur móttekið úrskurðina og farið yfir efni þeirra. Sveitarfélagið er ekki sammála því lagalega mati sem þar kemur fram að því marki sem úrskurðirnir byggja á túlkun ráðuneytisins á þeim reglum sem um málin giltu.
Vestmannaeyjabæ barst þriðji úrskurðurinn 28. ágúst. Úrskurðir í starfsmannamálum eru kynntir þeim stjórnendum, starfsmönnum og eftir atvikum kjörnum fulltrúum sem þurfa að koma að meðferð þeirra eða eftirfylgni vegna starfa sinna. Vestmannaeyjabær telur ekki rétt að tjá sig frekar um innri málsmeðferð einstakra starfsmannamála.
Vestmannaeyjabær tjáir sig ekki um innri meðferð einstakra starfsmannamála umfram það sem leiðir af lögum og reglum um upplýsingagjöf.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á réttmæti úrskurðanna fyrir dómstólum. Málin eru því enn til skoðunar og ekki endanlega til lykta leidd.
Vestmannaeyjabær leitast ávallt við að læra af úrlausnum dómstóla, ráðuneyta og annarra stjórnvalda. Verklag sveitarfélagsins er reglulega yfirfarið og uppfært eftir því sem tilefni er til.
Vestmannaeyjabær metur reglulega verklag sitt og ráðgjöf í starfsmannamálum með það að markmiði að tryggja vandaða stjórnsýslu og málsmeðferð. Sveitarfélagið hyggst ekki tjá sig frekar um innri verkferla eða einstök starfsmannamál.
Vestmannaeyjabær tjáir sig ekki um samskipti, viðræður eða hugsanleg fjárhagsleg málefni sem kunna að varða einstök starfsmannamál eða einstaklinga.
Annað sem Vestmannaeyjabær vill koma á framfæri
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að ákvarðanir í starfsmannamálum eru teknar að undangengnu mati á atvikum hvers máls fyrir sig og með hliðsjón af lögbundnum skyldum sveitarfélagsins gagnvart starfsemi sinni, starfsfólki og þeim þjónustuþegum sem reiða sig á starfsemi bæjarins. Um er að ræða vandmeðfarið mat sem getur haft áhrif á marga ólíka hagsmunaaðila. Af þeirri ástæðu telur sveitarfélagið ekki rétt að ræða einstök starfsmannamál á opinberum vettvangi umfram það sem leiðir af lögum og reglum.
Þar sem málin eru enn til skoðunar telur Vestmannaeyjabær ekki rétt að tjá sig frekar um efnisatriði þeirra að svo stöddu. Jafnframt verður sveitarfélagið ekki með frekari athugasemdir eða svör við fyrirspurnum um þessi mál á meðan afstaða til mögulegrar frekari málsmeðferðar liggur ekki fyrir.
Fyrri umfjöllun: