Það er virkilega ánægjulegt að sjá þann kraft sem nýr dýpkunaraðili hefur komið með inn í Landeyjahöfn. Strax á fyrstu vikunum sjáum við hversu miklu máli skiptir að hafa afkastamikinn dýpkunaraðila sem getur nýtt þau tækifæri sem gefast til fulls.
Tilkynning Herjólfs ohf. í dag um fulla áætlun á morgun er gott dæmi um það. Sá hraði og þau afköst sem við höfum séð að undanförnu eru það sem Eyjamenn hafa lengi kallað eftir.
Við skulum þó ekki missa sjónar á stóra verkefninu. Landeyjahöfn er enn ekki sú höfn sem okkur var lofað og áfram þarf að vinna að varanlegum lausnum.
En staðan í dag er betri og það ber að viðurkenna.
Bæjarstjórn og íbúar Vestmannaeyja hafa staðið saman og þrýst á um að fá öflugan dýpkunaraðila með mikla tæknilega getu. Nú er hann kominn og við sjáum strax hvaða máli aukin afkastageta getur skipt.
Við förum því bjartsýnni inn í veturinn. Nú reynir á hvort þessi aukna geta skili sér í því sem mestu máli skiptir fyrir okkur Eyjamenn: betri, öruggari og áreiðanlegri samgöngum.