Íslenska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Eyjamannsins Arnars Péturssonar, vann góðan þriggja marka sigur á Póllandi, 35–32, í vináttulandsleik í Katowice í dag. Þetta var fyrri leikur liðanna af tveimur um helgina og fór hann fram fyrir luktum dyrum.
Leikurinn var jafn framan af og liðin skiptust á að hafa forystuna. Pólverjar leiddu 7–6 eftir tíu mínútna leik, en íslenska liðið hafði snúið stöðunni við og leiddi 12–11 þegar 20 mínútur voru liðnar. Heimakonur sóttu hins vegar í sig veðrið undir lok fyrri hálfleiks og leiddu 17–16 í hálfleik.
Pólverjar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og höfðu tveggja marka forskot, 24–22, þegar 20 mínútur voru til leiksloka. Þegar tíu mínútur voru eftir munaði aðeins einu marki, en þá var staðan 29–28, Póllandi í vil. Ísland var sterkari á lokamínútum leiksins og tryggði sér að lokum þriggja marka sigur, 35-32.
Eyjakonurnar Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, Elísa Elíasdóttir, leikmaður Vals, og Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Blomberg-Lippe, voru allar í leikmannahópi íslenska liðsins. Sandra skoraði þrjú mörk í leiknum og Elísa eitt.
Elín Klara Þorkelsdóttir, leikmaður sænska liðsins IK Sävehof, fór fyrir íslenska liðinu og var markahæst í leiknum með ellefu mörk.
Liðin mætast á ný á laugardaginn klukkan 16:00 og verður leikurinn sýndur beint á Livey Sport.